Birnuheimur Málmfríðar

Velkomin í heim Birnunnar

04.04.2008 16:07:38 / birnamg

Sér fyrir endann

Nú er maður búinn að vera fjarri góðu gamni ansi lengi, föst inni á LSH og ofan í námsbókum. Nú sér fyrir endann á þessu í bili, er komin í upplestrarfrí fyrir embættisprófið sem verður 16.eða 17. apríl. Svo spítir maður í lófana með lokaverkefið sem verður kynnt á rannsóknardegi í ljósmóðurfræðum þann 23. mai. Hamingjan endar ekki þar því þann 31. mai fer ég til Ítalíu í 10 daga útskriftaferð. Jeij!!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

31.08.2007 20:41:54 / birnamg

Aðstoð óskast

Á heimilinu standa nú yfir deilur um á hvaða tíma seinni parturinn er. Öll aðstoð við að útkljá þetta mál er vel þegin.

Kveðja Birna (sem hefur að sjálfsögðu rétt fyrir sér) 


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 09:32:34 / birnamg

Önnur störf

Hver eru þau þessi önnur störf sem hljóta að vera svo miklu betur borguð. Kennarar, lögreglumenn, hjúkrunarfræðingar, leikskólakennar eru meðal stétta sem virðast leita svo mikið til annarra starfa samkvæmt fjölmiðlum. Mig langar bara svo mikið að vita hver þessi önnur störf eru og hvort nóg sé til af þeim.

Að öðrum málum.....Fimmvörðuhálsgangan var drulluerfið og þegar við komum í bása um kvöldið, þegar fæturnir á mér virtust hundrað kíló hvor, hugsaði ég ...aldrei aftur!!! Harðsperrurnar morguninn eftir voru samt alveg þolanlegar og strax fórum við að ræða um Laugavegsgöngu næsta sumar...og ég er stax farin að hlakka til. Landslagið á þessari leið um Fimmvörðuháls er alveg magnað, minnir helst á senu úr Hringadróttinssögu á köflum. Fyrir áhugasama gerði Gunnar ágætis leiðarlýsingu á blogginu sínu 10/8. Benda má á að Gunnar er þessi rösklegi en við Heiðar erum þessi á drollinu með kaffipásurnar. Þar eru einnig nokkrar myndir sem ég tók (kann ekki að setja þær inn sjálf...auli ...já ...ég veit). 

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.08.2007 21:32:08 / birnamg

Smá ferðasaga

Komum á dögunum heim úr 9 daga ferðalagi um landið. Tjölduðum fyrst eina nótt á tjaldsvæðinu Hömrum á Akureyri sem er orðið mjög flott þó mér finnist klósett aðstaðan alltaf mega vera betri. Héldum svo áleiðis til Egilsstaða en á þeirri leið gerðist sá merki áfengi hjá Álfrúnu að kúka í kopp:lol: Það mun hafa verið á biskupshálsi sem verður hér eftir minnst með hlýhug þar sem barnið hefur kúkað í klósett síðan (hefur semsagt verið vandamál í marga mánuði).

Frá Egilsstöðum gerðum við út í 4 daga, fengum gistingu hjá móðurbróður Heiðars og fórum í dagsferðir á staðina í kring. Fórum meðal annars á Seyðisfjörð  hinn fagra. Þar keypti ég mér blússu og pils í indversku búðinni sem hefur verið þar um nokkurt skeið. Mér skilst að búðin sé á sölu þar sem eigandinn er að flytja til Indlands...ef einhver hefur áhuga á að breyta til. Á Egilsstöðum fórum við á barnaleikritið" Bara í draumi" sem er frumsamið af leikfélagi staðarins sem ku vera atvinnuleikhús...fínasta skemmtum fyrir Álfrúnu en þetta var ekki eitt af þeim leikritum sem fullorðnir hafa mjög gaman að líka...a.m.k. ekki við Heiðar. Eftir leikhúsið fengum við okkur hreindýraborga á Hamborgarabúllunni og vorum ekki svikin af þeim:-)

Áfram hélt ferðin sem planlögð hafði verið suður fyrir en veðrið sagði okkur að halda aftur norður sem og við gerðum. Fengum jeppann lánaðan hjá Rúnari og förum upp í Laugafell, ca. 15 kílómetrum norðan Hofsjökuls. Það var upplifun að standa upp á Laugafellinu sjálfu og sjá yfir á Hofsjökul og Vatnajökul. Í Laugafelli er tjaldsvæði og skálar og fínasta snyrtihús. þar er flott náttúrulaug og svo mikið af heitu vatni að það rennur heitt vatn í klósettunum. Mjög sérstök tilfinning að setjast á volga setuna og fá heitan straum upp bakið. Mæli eindregið með Laugafelli en mínus fær það þó fyrir hundinn sem landvörðurinn var með. Hundurinn var stundum laus sem hrelldi Álfrúnu mína mikið þar sem hann var álíka stór og hún. Eftir að Heiðar ræddi við manninn var hundurinn að mestu bundinn en ekki varð komist hjá því að sjá hundaskít hér og þar...dálítill mínus verð ég að segja.  Vorum þarna í tjaldi í tvær nætur en á  heimleiðinni gistum við eina nótt í bústað í Borgarfirðinum þar sem fjölskyldan mína var. Þar tókum við Heiðar smá æfingagöngu með bakpoka upp í fjallshlíðina en í næstu viku munum við ganga fimmvörðuhálsinn.  


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.06.2007 09:04:36 / birnamg

Góðan daginn

Varð þess heiðurs aðnjótandi á dögunum að fá að hjálpa henni Elísabetu Láru Gunnarsdóttur í heiminn. Hún er 11 barnið sem ég tek á móti á þessu ári og þessari ævi. Nú er smá pása frá fyrirlestrum og verkefnum þannig að ég nýt þess að vera bara í verknámi í sumar. Við litla fjölskyldan munum sóla okkur á Spáni um vikutíma en annað er óráðið. Gerum okkur vonir um góðar útileguhelgar í hinu yndislega íslenska sumarveðri8) Það verður væntanlega lítið úr stóru vinahópsútilegunni í sumar þar sem stórt hlutfall mannskapsins er nýbúinn eða næstum því búinn að stuðla að fjölgun í þeim stórkostlega hópi. Frídagur hjá mér í dag en vinna alla helgina. Best að byrja að nýta daginn.


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.03.2007 17:47:31 / birnamg

Fríhelgi!!!

Ég á 100% fríhelgi, engin stór verkefni eiga að skilast í næstu viku. Tilfinningin er svo góð að ég man næstum því hvernig það er að vera ekki í skóla. Annars er allt gott að frétta úr sveitinni. Mikið djamm er framundan hjá mér. Árshátíð Oddrúnar, félags ljósmæðranema(sem í eru 20 manns) er um næstu helgi og 50 ára partý hjá pabba helgina þar á eftir. Tveimur vikum eftir það förum við svo til Cambrige að heimsækja tengdó. Nóg á döfunni semsagt. Hvernig líst fólki annars á snípsíðuna?

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.01.2007 21:51:35 / birnamg

Fræðandi efni!

Skoðið nýju slóðina á áhugaverðar síður!!!
Klittinn:lol:

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 21:32:31 / birnamg

síðasti spölurinn þessa önn

Er á fullu að reyna að klára síðustu verkefnin fyrir jólafrí...eða kannski ekki svo mikið á fullu þar sem ég er að blogga....anyway.... í huganum.  Skilafrestur 20.des en ætlaði að vera búin 15.des...líklega verður það ekki.  Flaug á hausinn í hálkunni á sunnudaginn, var með Álfrúnu í fanginu en náði sem betur fer að taka af henni fallið.  Ég er hins vegar frekar aum og marin hægra megin í líkamanum, hef sennilega brákað rifbein þar sem mér finnst fremur erfitt að ná djúpum andardrætti.  Fer kannski til læknis þegar ég verð blá á vörunum með áætlaða súrefnismettun upp á 85.  Hvað gæti hann svo sem gert, það er ekki eins og ég geti fengið eitthvað gert við þessu...kannski rifjagifs...þá væri nú gott að anda. 
    Mitt helsta bjargráð við verkefnaleiða er rauðvín...keypti belju til að reyna að göfga andann síðasta spölinn....skáldagyðjan Mikileyk getur hjálpað mikið i hóflegu magni .....en ef hún kemst inn í kroppinn í of miklum mæli veldur hún bara gífurlegri syfju.
Bið að heilsa öllum sem muna eftir mér
Kveðja Birna Málmfríður

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.11.2006 21:36:27 / birnamg

Líf mitt sem nemandi

Ég á ekkert líf! Ef þú ert að hugsa um að byrja aftur í skóla, læra eitthvað meira......ekki gera það...allavega ekki ljósmóðurfræði. Ég byrjaði í skólanum í byrjun september. Síðan hef ég rétt náð að hitta fjölskyldu mína og engan annan. Ég geri verkefni allan sólarhringinn..þegar ég er ekki í prófi. Ég er grágræn í framan og baugarnir hanga niður fyrir höku. Hlakka til að sjá vini mína....sem verður kannski aldrei!!
Jæja. en þetta er samt mjög skemmtilegt og ég hlakka til að takast á við hið raunverulega starf ljósmóður. Ég er farin að hlakka mikið til jólanna en hlakka enn meira til janúar mánuðar því þá mun ég taka á móti mínum fyrstu nemabörnum. Kveðja Birna

» 3 hafa sagt sína skoðun

01.06.2006 09:40:20 / birnamg

Fréttir af okkur

Ég er auðvitað alveg himinlifandi með kosningaúrslitin á Álftanesi...jei! Þar að auki er ég alveg einstaklega ánægð yfir að búa ekki í Reykjavík. Við grófum upp bæklinginn með kosningaloforðum Álftaneslistans, ætlum að geyma hann svo hægt sé fylgjast með hversu vel gengur að efna loforðin fögru. Ég hlakka mikið til að fá fyrsta loforðið efnt en það er að lækka leikskólagjöldin úr 28.0000 í 14.000 strax í haust. Gæti ekki komið á betri tíma þar sem ég er að fara í skóla í haust. Já, þeir sem ekki vita, þá komst ég inn í ljósmæðranámið og mun lifa og hrærast í þeim heimi næstu tvö árin. Það verður gaman að sjá hvort að vökudeildarhjúkkan ég sem vil helst að öll börn fæðist við hliðina á vökudeildinni verði farin að taka á móti börnum í  heimahúsum áður en langt um líður ;) Kemur í ljós.

Það er búið að vera í nógu að snúast hér hjá litlu sveitafjölskyldunni. Við höfum staðið í ströngu við að gróðursetja og fegra umhverfið okkar. Settum runna (brekkuvíði) og og nokkur Reynitré í garðinn okkar. Svo eru að hefjast pallaframkvæmdir og er nú þegar búið að grafa fyrir pallinum sjálfum, þ.e. stækkuninni. Nokkrir karlmenn í blokkinni hjálpuðu okkur eftir að hafa verið heilan dag í drulluvinnu í garðinum. það er svo aganlega vingjarnlegt fólkið hér í sveitinni. Þeir fengu að sjálfsögðu öl fyrir hjálpina og verður boðið í grillveislu þegar allt verður tilbúið.

Aftur að kosningunum. Ég var auðvitað að vinna en náði að vera heima þegar fyrstu tölurnar komu. Rosalega langaði mig að vera í skemmtilegu kosningapartýi, ég fékk alveg hnút í magann. Krakkar...næstu Alþingiskosningar...er það ekki bara málið:lol: Jæja, tilhugsunin er allavega skemmtileg þó að vinnan á bak við væri kannski too much, miðað við hvað allir eru alltaf uppteknir.


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 13:06:16 / birnamg

Svo er fullt af fólki sem fær ekkert að borða

Það eru fáranlegar “seremóníur” í kringum ostaát á mínu heimili, bara venjulegan brauðost. Tl að byrja með get ég ekki hugsað mér að kaupa enda, frekar sleppi ég að kaupa ostinn. Endinn er bæði ljótur og svo er hann svo óstöðugur. Einu sinni gat ég ekki hugsað mér að borða efstu sneiðina, get það núna en Heiðar hins vegar ekki. Ég þoli ekki að sjá þegar ostur er skorinn á breiða endanum, það er svo mikil sóun á osti. Neðsti hlutinn fer nefnilega alltaf til spillis, a.m.k. 1 cm og ef osturinn er skorinn “breiða enda megin” er meira sem fer til spillis. Síðast en ekki síst vil ég að fólk snúi ostinum reglulega þegar verið er að skera, bara svona 3-4 sneiðar og svo snúa því annars brotnar af endanum. Það er ótrúlega ljótt svo ekki sé minnst á bruðlið. Ég veit að þetta er ákveðin geðveiki en ég er hins vegar sannfærð um að ég á mörg þjáningarsystkin þarna úti. Svo vil ég bara segja að allir vinir mínir og kunningjar eru velkomnir í heimsókn þegar þá langar.
Ég skal bjóða upp á brauð og ost.....ef þið þorið!

» 8 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 10:35:20 / birnamg

prestar og mótmæli

Voðalega getur fólk alltaf deilt um ráðningar presta, mótmæli og bölvuð leiðindi.  Hvar er allt þetta fólk á sunnudögum þegar prestarnir messa yfir hálftómum kirkjum?    

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 13:10:52 / birnamg

Viðbjóðslega ríka fólkið

Bjánahrollurinn sem fór um mig yfir fréttunum um helgina þegar tilkynnt var um nýja nafnið á Íslandsbanka. U2 í botni og Bjarni Ármannsson æðandi fram og aftur um sviðið, klappandi í peningasæluvímu ásamt þúsund manns. Þvílík múgæsing! Ég sá ekki upphaf fréttarinnar en fattaði strax að þetta hlyti að snuast um fjármál. Var að spá í hvort þetta væri nýr sértrúarsöfnuður(mammmonistar) eða kannski ný tegund verðlauna(montverðlaun hinna viðbjóðslega ríku) og fólkið væri að bíða eftir að ríkasti maður landsins kæmi upp á svið til að taka á móti styttunni sinni og halda ræðu um það hvað hann væri þakklátur forfeðrum sínum fyrir að vera svona duglegir að vinna ógeðisvinnu svo hann geti flogið á milli partía í einkaþotunni sinni.

Væri ekki annars sniðugt að breyta lista Forbes yfir ríkasta fólk í heimi í verðlaun Forbes fyrir ríkasta fólk í heimi, svona eins og Óskarinn. Ég sé fyrir mér hvernig ríka fólkið gæti gengið eftir rauða dreglinum, sprautað kampavíni og kavíar yfir fátæka fólkið sem hópast í kring í von um að moldríka fólkið hendi til þeirra nokkrum aurum.



» 2 hafa sagt sína skoðun

22.02.2006 23:39:53 / birnamg

Dagurinn í dag kemur sem betur fer aldrei aftur....er það nokkuð?

Síðast liðin nótt var mjög erfið í vinnunni, var ein með fárveikan krakka í einangrun og komst ekki einu sinni á klósettið. Á leiðinni heim hvellsprakk á bílnum á 90 km hraða og mátti minnstu muna að ég missti stjórn á honum (eins og adrenalínið hafi ekki verið nóg í mér eftir nóttina). Mér tókst furðanlega fljótt þó að ná mér niður og sofna. Þegar ég vaknaði fór ég að láta gera við dekkið sprungna sem var í bílskottinu. Keyrði upp á lyftuna á dekkjaverkstæðinu og tók lykilinn úr “svissinum” til að opna skottið (verður að opnast með lykli). Tókst mér þá að beygla lykilinn en ekki að opna skottið, gat ekki einu sinni sett lykilinn aftur í “svissinn”. Dekkjaskiptingamaðurinn náði að rétta lykilinn með einhverri töng svo að ég gat startað bílnum en þorði ekki að reyna aftur að opna skottið með honum. Ég er því enn á “aumingjanum”,aumingja ég.

 Já, svo vildi ég líka láta vita að ákvörðun 1, varðandi partý, hefur verið tekin. Ekki þetta árið. Takk samt Elín og Torfi fyrir góð ráð og hlýleg orð. Ef þið hefðuð komist, hefði ég haldið partý, bara fyrir ykkur:)

» 4 hafa sagt sína skoðun

15.02.2006 12:29:53 / birnamg

Meira um afmæli

Ég er trúlega haldin einhvers konar valkvíða. Mestu krísur lífs míns í dag eru tvær. Annars vegar hvernig ég á að halda upp á afmælið mitt, partý eða út að borða (maður verður nú bara 31 einu sinni á ævinni) og hins vegar hvort ég á að sækja um í ljósmæðranáminu (umsóknarfrestur nálgast). Ég skipti um skoðun á báðum krísum 2x á hverjum klukkutíma. Öllum er frjálst að hjálpa mér með þessar stóru ákvrðanir!

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Klukkan